Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

26.07.2024 - 28.11.2019

París 2024

Ólympíuleikarnir fara fram í París í...
20.09.2024 - 21.09.2024

Ársþing SKÍ 2024

Ársþing Skíðasambands Íslands verður haldið...
22.10.2026 - 28.11.2019

YOG 2026 - Dakar

Ólympíuleikar ungmenna (YOG) fara fram í...
30

Snjólaug María Íþróttamaður USAH

06.01.2014

Skotíþróttakonan Snjólaug María Jónsdóttir úr Skotfélaginu Markviss á Blönduósi var valin Íþróttamaður Ungmennasambands A-Húnvetninga 2013 nú um áramótin.  Sjö tilnefningar bárust frá aðildarfélögum sambandsins og varð Snjólaug María hlutskörpust en hún varð bæði Íslandsmeistari og Bikarmeistari í leirdúfuskotfimi (Skeet) á síðasta keppnistímabili.  Hún jafnaði einnig Íslandsmet kvenna í júní sl. og bætti það svo tvisvar síðar á árinu.  Snjólaug vann kvennaflokkinn í sinni íþróttagrein á fimm mótum af þeim níu sem hún tók þátt í á síðasta keppnistímabili í skotíþróttum. 

Á myndinni má sjá Snjólaugu Maríu með bikarinn sem hún hlaut í hópi annarra íþróttamanna USAH sem tilnefndir voru að þessu sinni.