Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

10.04.2026 - 11.04.2026

Ársþing FRÍ 2026

Ársþing Frjálsíþróttasambands Íslands (FRÍ)...
5

Lúðvík Georgsson heiðraður á ársþingi KSÍ

18.02.2014

Á ársþingi KSÍ í Hofi á Akureyri um síðastliðna helgi var Lúðvík Georgsson sæmdur Heiðurskrossi ÍSÍ fyrir frábær störf í þágu íþróttahreyfingarinnar. Það var Hafsteinn Pálsson, formaður Heiðursráðs ÍSÍ, sem sæmdi Lúðvík krossinum.

Lúðvík hefur verið ötull liðsmaður knattspyrnuhreyfingarinnar í áratugi.  Hann tók sæti í stjórn KSÍ árið 1996 en gaf ekki kost að sér til endurkjörs að þessu sinni.