Keppni lokið í stórsvigi
.jpg?proc=400x400)
Einar Kristinn Kristgeirsson og Brynjar Jökull Guðmundsson hafa nú lokið keppni í stórsvigi karla í Sochi. Þeir voru í 63. og 65. sæti eftir fyrri ferðina, af þeim 79 keppendum sem komust niður. Einar Kristinn fór brautina á samtals 3:06,55 mínútum og hafnaði í 56. sæti. Hann var 20,16 sekúndum á eftir Ólympíumeistaranum Ted Ligety. Brynjar Jökull fór brautina á samtals 3:09,61 mínútum og hafnaði í 59. sæti. Hann var 24,32 sekúndum á eftir Ligety. Sjö keppendur kláruðu ekki seinni ferðina og því voru það 72 af 109 sem luku keppni í stórsviginu.
Aðstæður í fjallinu í dag voru frábærar, fallegt veður og gott skyggni. Nú eiga íslensku keppendurnir aðeins eftir að keppa í svigi. Helga María og Erla keppa 21. febrúar og Einar Kristinn og Brynjar Jökull keppa 22. febrúar. Það verður spennandi að sjá hvernig þeim gengur í sviginu en það er yfirleitt aðal keppnisgrein Íslendinga.