Nanjing 2014 - Sunneva Dögg verður fánaberi
14.08.2014
Ólympíuleikar ungmenna verða settir að kvöldi laugardagsins 16. ágúst nk. og fer setningarhátíðin fram á glæsilegum leikvangi sem einnig mun hýsa keppni í frjálsíþróttum á leikunum. Tekur völlurinn 26.000 manns í sæti.
Fánaberi Íslands verður Sunneva Dögg Friðriksdóttir, keppandi í sundi.
Keppni íslenska hópsins hefst degi fyrir setningarhátíðina, en drengjalandslið Íslands í knattspyrnu (U15) leikur þá á móti liði Hondúras. Hefst leikurinn kl. 18:00 á staðartíma eða kl. 10:00 á íslenskum tíma.
Keppni í sundi hefst sunnudaginn 17. ágúst og keppir Kristinn Þórarinsson á fyrsta degi.