Forseti ÍSÍ heimsækir íþróttahéruð
10.09.2014
Lárus L. Blöndal forseti ÍSÍ og Líney Rut Halldórsdóttir framkvæmdastjóri ÍSÍ hefja á morgun ferð sína í 10 íþróttahéruð á Suður-, Austur- og Norðurlandi. Tilgangur ferðarinnar er að fræðast um það viðamikla íþróttastarf sem fram fer í íþróttahéruðunum og eiga spjall um það helsta sem brennur á íþróttahreyfingunni á hverjum stað fyrir sig. Fundað verður með USVS, USÚ, UÍA, HSÞ, ÍBA, UMSE, ÚÍF, UMSS, USAH og USVH. Auk þess munu forseti og framkvæmdastjóri skoða íþróttamannvirki í þéttbýliskjörnum á þessum svæðum og eiga spjall við forsvarsmenn félaga þar sem því verður við komið.
Á næstu mánuðum er fyrirhugað að sækja heim þau héruð sem ekki næst að heimsækja í þessari ferð.