Blómlegt íþróttastarf í Skagafirði
17.09.2014
Íþróttalíf á svæði Ungmennasambands Skagafjarðar er blómlegt og íþróttamannvirki góð. Dúfa Dröfn Ásbjörnsdóttir framkvæmdastjóri UMSS og Rúnar Vifilsson gjaldkeri UMSS fóru fyrir skemmtilegri kynningu á mannvirkjum á Sauðárkróki en í kjölfar þess var fundað í ráðhúsi sveitarfélagsins. Fundinn sat einnig Gunnar Gestsson úr varastjórn sambandsins. Farið var yfir málefni sem snúa að íþróttahreyfingunni á svæðinu og í heild ásamt því að fara yfir þau fjölbreyttu tækifæri til íþróttaiðkunar sem eru í boði fyrir íbúa sveitarfélagsins.