Skíðafélag Ólafsfjarðar fyrirmyndarfélag ÍSÍ
19.01.2015Skíðafélag Ólafsfjarðar fékk viðurkenningu sem fyrirmyndarfélag ÍSÍ sunnudaginn 18. janúar síðastliðinn í skíðaskálanum í Tindaöxl í Ólafsfirði. Þennan dag var viðburðurinn "World Snowday" haldinn hátíðlegur á skíðasvæðum landsins og var skíðasvæði Ólafsfirðinga engin undantekning þar. Margt var um manninn á skíðasvæðinu og kakóið og meðlætið rann ljúft niður að loknum góðum degi. Það var Sigurpáll Þór Gunnarsson formaður félagsins sem tók við viðurkenningunni úr hendi Viðars Sigurjónsson Skrifstofustjóra ÍSÍ á Akureyri. Á myndinni eru þeir Viðar og Sigurpáll.