Þorsteinn endurkjörinn formaður USVS
08.04.2015
Ungmennasamband Vestur-Skaftafellssýslu hélt ársþing sitt í Vík í Mýrdal laugardaginn 28. mars sl. Vel var mætt á þingið.
Þorsteinn M. Kristinsson var endurkjörinn formaður, en aðrir í stjórn eru Erla Þórey Ólafsdóttir, Ástþór Jón Tryggvason, Sæunn Káradóttir og Kjartan Ægir Kristinsson. Í varastjórn eru Ármann Daði Gíslason, Kristín Ásgeirsdóttir og Halldóra Gylfadóttir. Meðal þingsamþykkta var að fara í stefnumótun og móta m.a. afreksstefnu sambandsins. Á þinginu voru einnig afhentar viðurkenningar fyrir góðan árangur í íþróttum og var Íþróttamaður USVS 2014 útnefndur Guðni Páll Pálsson, Umf. Kötlu. Efnilegasti unglingurinn var útnefndur Aron Bjartur Jóhannsson, Umf. Kötlu.