Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

26.07.2024 - 28.11.2019

París 2024

Ólympíuleikarnir fara fram í París í...
27.07.2024 - 13.08.2024

Keppni í 100 m...

Anton Sveinn McKee keppir í 100 m bringusundi...
26

Umsóknarfrestur í Afrekskvennasjóð rennur út á miðvikudag

25.09.2015Afrekskvennasjóður Íslandsbanka og ÍSÍ var stofnaður með framlagi bankans árið 2007. Markmið og tilgangur sjóðsins er að styðja við bakið á afrekskonum í íþróttum og gera þeim betur kleift að stunda sína íþrótt og ná árangri. Auglýst hefur verið eftir umsóknum vegna úthlutunar ársins 2015, er nú verið að úthluta í ellefta sinn úr sjóðnum. Umsóknarfrestur rennur út miðvikudaginn 30. september. Á myndinni sem fylgir má sjá fulltrúa styrkþega, Íslandsbanka og ÍSÍ við úthlutun styrkja árið 2014.

Nánar er hægt að lesa sér til um sjóðinn og nálgast umsóknareyðublöð á heimasíðu ÍSÍ, sjá hér.