Fylgstu með Vetrarólympíuleikum ungmenna á samfélagsmiðlunum!
![](/library/Myndir/Afreks--og-olympiusvid/Logo/YOG-LHMR-bw-vert%20-%20Copy%20(1).png?proc=400x400)
Vetrarólympíuleikar ungmenna hefjast 12. febrúar næstkomandi í Lillehammer. Hægt verður að fylgjast með leikunum á YouTube rás Alþjóðaólympíunefndarinnar (IOC) á slóðinni www.youtube.com/Olympics. Einnig er hægt að fylgjast með á heimasíðu leikanna, www.lillehammer2016.no, og á samfélagsmiðlunum Facebook (www.facebook.com/Lillehammer2016), Twitter (@Lillehammer2016), Instagram (@Lillehammer2016) og Snapchat (Lillehammer2016).
Myllumerkin #Lillehammer2016 og #iLoveYOG verða einnig notuð til að deila skemmtilegum myndum og efni frá leikunum.