Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

21.01.2026 - 21.01.2026

RIG ráðstefna

Í tengslum við RIG þá verður ráðstefna um...
14

Ólafur Oddur áfram formaður GLÍ

02.03.201652. ársþing Glímusambands Íslands var haldið laugardaginn 27.febrúar 2016 í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Ársþingið gekk vel fyrir sig og var mæting ágæt. Þingforseti var Kjartan Lárusson og þingritari var Jón M. Ívarsson. Ólafur Oddur Sigurðsson var endurkjörinn formaður Glímusambandsins og nýr inn í varastjórn var kjörinn Þórður Vilberg Guðmundsson. Umræður á þinginu voru góðar og mikill hugur í glímufólki fyrir komandi verkefnum.  Ingi Þór Ágústsson stjórnarmaður ÍSÍ og Örn Guðnason varaformaður UMFÍ voru gestir þingsins.