Nýr formaður kjörinn á ársþingi UDN
Ársþing Ungmennasambands Dalamanna og N-Breiðfirðinga fór fram í Dalabúð í Búðardal mánudaginn 18. apríl síðastliðinn. Þingið var nokkuð vel sótt. Heiðrún Sandra Grettisdóttir var kjörin formaður sambandsins til eins árs en hún var áður varaformaður og gegndi embætti formanns UDN í fjarveru Jenny Nilsson formanns sem flutti af landi brott á kjörtímabilinu. Stjórn UDN skipa nú Heiðrún Sandra Grettisdóttir formaður, Jóhanna Sigrún Árnadótir varaformaður, Ingveldur Guðmundsdóttir gjaldkeri, Pálmi Jóhannsson ritari og Herdís Erna Matthíasdóttir meðstjórnandi. Varamenn stjórnar eru Anna Berglind Halldórsdóttir og Arnar Svansson. Íþróttamaður UDN 2015 var kjörinn Vignir Valbergsson frjálsíþróttamaður. Hans sterkasta grein er spjótkast en hann er þó liðtækur í ýmsum öðrum greinum frjálsíþrótta. Nánari upplýsingar um starfsemi UDN má finna á heimasíðu sambandsins, www.udn.is.
Gunnlaugur Júlíusson úr framkvæmdastjórn ÍSÍ var fulltrúi ÍSÍ á þinginu.