Ríó 2016 - Heimsókn ráðherra í Ólympíuþorpið
09.08.2016Í gær heimsótti mennta- og menningarmálaráðherra, Illugi Gunnarsson, Ólympíuþorpið í Ríó ásamt Brynhildi Einarsdóttur konu sinni og Sigríði Hallgrímsdóttur aðstoðarkonu. Voru vistarverur íslenska hópsins skoðaðar og heilsað upp á íslenska þátttakendur. Ráðherra hefur undanfarna daga fylgst með keppni á leikunum.
Líney Rut Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri ÍSÍ og Andri Stefánsson, aðalfararstjóri hópsins gengu með þeim um þorpið þar sem um 15.000 þátttakendur gista á meðan á leikunum stendur.