Ríó 2016 - Júdógarpar
![](/library/Myndir/Frettamyndir/Afreks-og-olympiusvid/2016-Rio/J%c3%bad%c3%b3_m.jpg?proc=400x400)
Hér má sjá þá félagana úr júdóinu Bjarna Friðriksson þjálfara, Jóhann Másson formann Júdósambands Íslands og Jón Hlíðar Guðjónsson flokksstjóra í júdó á leikunum.
Bjarni Friðriksson náði þeim merka árangri á Ólympíuleikunum í Los Angeles árið 1984 að vinna til bronsverðlauna. Enn þann dag í dag eru það einu verðlaun norðurlandabúa á Ólympíuleikum í júdó. Nánar má kynna sér afrek Bjarna á heimasíðu ÍSÍ sjá hér.