Íþróttasjóður
14.09.2016
Mennta- og menningarmálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Íþróttasjóði sem starfar samkvæmt lögum nr. 64/1998 og reglugerð nr. 803/2008.
Veita má framlög til eftirfarandi verkefna:
- Sérstakra verkefna á vegum íþróttafélaga og samtaka þeirra esm miða að því að bæta aðstöðu til íþróttaiðkana
- Útbreiðslu- og fræðsluverkefna
- Íþróttarannsókna
- Verkefna samkvæmt 13. gr. íþróttalaga
Umsóknareyðublöð og leiðbeiningar er að finna á rannis.is
Umsóknum skal skila á rafrænu formi fyrir kl.17:00, 1. október 2016.
Nánari upplýsingar veitir Andrés Pétursson, andres.petursson@rannis.is, sími 5155833.