Golfklúbbur Akureyrar fyrirmyndarfélag ÍSÍ
![](/library/Myndir/Frettamyndir/Fraedslusvid/a%c3%b0alfundurGA-1248.jpg?proc=400x400)
Golfklúbbur Akureyrar fékk endurnýjun viðurkenningar félagsins sem fyrirmyndarfélag ÍSÍ þann 1. des. sl. á aðalfundi félagsins. Félagið fékk fyrst viðurkenningu þessa efnis frá ÍSÍ árið 2006.
Það var Sigmundur Ófeigsson formaður klúbbsins sem tók við viðurkenningunni úr hendi Viðars Sigurjónssonar skrifstofustjóra ÍSÍ á Akureyri. Á myndunum eru frá vinstri þeir Viðar og Sigmundur.