Síðasti skiladagur umsókna í Ferðasjóð íþróttafélaga
09.01.2017
Í dag er síðasti skiladagur umsókna í Ferðasjóð íþróttafélaga. Skila má umsóknum til miðnættis í kvöld en þá verður lokað sjálfvirkt fyrir umsóknir. Ekki er unnt að taka á móti umsóknum eftir að kerfinu hefur verið lokað.
Öll íþrótta- og ungmennafélög innan vébanda ÍSÍ geta sótt um styrk úr sjóðnum vegna keppnisferða innanlands á fyrirfram skilgreind styrkhæf mót.
Hægt er að fara inn á umsóknarsvæðið hér.