Nýr starfsmaður ÍSÍ
01.02.2017
ÍSÍ hefur ráðið Magnús G. Þórarinsson til starfa sem verkefnastjóra á Almenningsíþróttasviði ÍSÍ. Magnús er menntaður grunnskólakennari en hefur unnið við framkvæmdadeild hjá Félagsbústöðum hf. síðastliðin 15 ár.
Magnús hóf störf hjá ÍSÍ í dag, 1. febrúar, og býður ÍSÍ hann hjartanlega velkominn til starfa.