Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

28

Þriðja keppnisdegi lokið

15.02.2017

Á þriðja keppnisdegi Vetrarólympíuhátíðar Evrópuæskunnar áttum við keppendur í listskautum, svigi stúlkna og brettaati drengja.

Herdís Birna Hjaltalín keppti í frjálsum æfingum á listskautum og varð í 19. sæti með 77.95 stig.

Í svigi stúlkna kepptu María Finnbogadóttir, Harpa María Friðgeirsdóttir og Katla Björg Dagbjartsdóttir. Í fyrri umferð varð Katla Björg í 20. sæti á tímanum 56,28 (+3.79). Í síðari umferð var hún á tímanum 59,00. Hún varð í 18. sæti samtals á +6.64 en sigurvegarinn var á tímanum 1:48,64. Í fyrri umferð varð Harpa í 30. sæti á tímanum 59,45 (+6.96). Í síðari umferð var hún á tímanum 1:01,97. Hún endaði í 26. sæti á +12.78. María Finnbogadóttir heltist úr lestinni í fyrri umferð.

Í brettaati kepptu Aron Kristinn Ágústsson, Bjarki Jarl Haraldsson og Tómas Orri Árnason. Í tímatökunni varð Tómas í 12. sæti. Besti tími hans var í fyrri umferð, 59.58 (+5.52). Í seinni umferð var hann á 1:00.02. Bjarki varð í 15. sæti í tímatökunni. Besti tími hans var í seinni umferð, 1:05.73 (+11.67). Í fyrri umferð var hann á 1:07.47. Kristinn varð í 18. sæti tímatökunnar. Besti tími hans var í seinni umferð, 1:09.65 (+15.59). Í fyrri umferð var hann á 1:10.04. Í fjórðungsúrslitum varð Tómas fjórði í sínum riðli og Bjarki þriðji - komust þeir því ekki lengra í keppninni. Lokaniðurstaðan hjá drengjunum varð sú að Bjarki hafnaði í 11. sæti, Tómas í því 16. og Aron í því 18.

Hægt er að fylgjast nánar með íslensku keppendunum á Snapchatti ÍSÍ: isiiceland

Myndir úr ferðinni er hægt að sjá á myndasíðu ÍSÍ.

Vefsíða Vetrarólympíuhátíðar Evrópuæskunnar er hér

 

Myndir með frétt