Myndbönd Sýnum karakter
Sýnum karakter, verkefni á vegum ÍSÍ og UMFÍ, hefur ráðist í myndbandagerð til þess að auglýsa vefsíðuna www.synumkarakter.is og koma því á framfæri við íþróttahreyfinguna að þar megi finna tæki og tól fyrir þjálfara, foreldra, iðkendur og fleiri til að nýta í íþróttaiðkun.
Sýnum karakter fékk til liðs við sig tvo flotta einstaklinga, Pálmar Ragnarsson, þjálfara yngri flokka hjá KR í körfubolta, og fimleikaþjálfarann Írisi Mist Magnúsdóttur. Þau eru í aðalhlutverkum í nokkrum auglýsingum sem Sýnum karakter gerði fyrir þá sem vilja læra að setja sér markmið, viðhalda áhuga á hreyfingu, bæta félagsfærni iðkenda og margt fleira.
Mikilvægt er að þjálfa iðkendur í því að tileinka sér góð viðhorf og góða hegðun í samskiptum. Leiðtogahæfni er einnig mikilvægur þáttur í íþróttum, en ýmislegt má lesa sér til um þann þátt íþróttaiðkunar og fleiri á vefsíðunni.
Hér fyrir neðan má sjá þau myndbönd sem Sýnum karakter hefur birt en einnig á Youtube-síðu Sýnum karakter.