Embættismenn stjórnar ÍSÍ
![](/library/Myndir/Frettamyndir/i%cc%81sI%cc%81%20Dagur-2-%20149.jpg?proc=400x400)
Fyrsti fundur nýkjörinnar framkvæmdastjórnar ÍSÍ fór fram fimmtudaginn 11. maí síðastliðinn. Framkvæmdastjórnin skipti með sér verkum og skipað var í ráð og nefndir ÍSÍ.
Embættismenn stjórnar eru sem hér segir: Sigríður Jónsdóttir varaforseti, Hafsteinn Pálsson ritari og Gunnar Bragason gjaldkeri.
Yfirlit yfir ráð og nefndir ÍSÍ er að finna á heimasíðu ÍSÍ eða með því að smella hér.