GSSE 2017: Að loknum þriðja keppnisdegi

Íslendingar stóðu sig mjög vel í dag og unnu meðal annars til 14 verðlauna.
Ísland er nú með 19 gull, 11 silfur og 11 brons og í 2. sæti á verðlaunatöflunni með samtals 41 verðlaunapeninga. Lúxemborg er í fyrsta sæti með 62 verðlaunapeninga. Kýpur er í 3. sæti með 42 verðlaunapeninga, en einungis 13 gull og fjöldi gullverðlauna ræður úrslitum á verðlaunatöflu.
Myndir frá Smáþjóðaleikunum má sjá á myndasíðu ÍSÍ.
Vefsíðu Smáþjóðaleikanna 2017 má sjá hér.
ÍSÍ er með Snapchat, isiiceland.
Einnig er vert að skoða smáforrit Smáþjóðaleikanna 2017.