GSSE 2017: Strandblaki lokið og tap hjá blakliði karla
![](/library/Myndir/Frettamyndir/Afreks-og-olympiusvid/2017-GSSE/19%20-%20Copy%20(1).jpg?proc=400x400)
Íslenska kvennalandsliðið í strandblaki keppti sinn fimmta og síðasta leik í dag. Liðið, sem skipar Matthildi Einarsdóttur og Heiðu Gunnarsdóttur, tapaði fyrir Carole Grethen og Rebekka Klerf frá Lúxemborg 2:0.
Íslenska karlalandsliðið í blaki tapaði gegn San Marínó í spennandi leik, 3:1 (22:25, 29:27, 25:12, 25:16). Íslenska liðið hefur tapað öllum sínum þremur leikjum.
Róbert Karl Hlöðversson var stigahæstur með 11 stig, Hafsteinn Valdimarsson var með 8 og Theodór Óskar Þorvaldsson 7.