GSSE 2017: Tveir Íslendingar kepptu í skotfimi með leirdúfum
02.06.2017
Tveir íslenskir keppendur tóku þátt í skotfimi með leirdúfum í dag. Það voru þeir Örn Valdimarsson og Hákon Svavarsson. Örn fékk 66 stig og er í 4. sæti eftir fyrri undanúrslitin. Hákon er með 64 stig og er í 6. sæti. Efstir eru Kýpverjarnir Achilleos og Chasikos með 70 stig.
Seinni undanúrslitin ásamt úrslitunum fara fram á morgun.