Ólympíudagurinn 23. júní
![](/library/Myndir/Frettamyndir/Fraedslusvid/19441812_1615195141859224_3509877219252260404_o.jpg?proc=400x400)
Þann 23. júní var Alþjóðlegi Ólympíudagurinn haldinn hátíðlegur um allan heim. Hann er haldinn í tilefni af stofnun Alþjóðaólympíunefndarinnar 23. júní árið 1894. Þá má segja að Ólympíuleikar til forna hafi verið endurvaktir og færðir til nútímans. Í tilefni af afmælisdeginum er fólk hvatt til þess að hreyfa sig og takast á við nýjar áskoranir.
Hér á Íslandi var haldið upp á Ólympíudaginn. Í tilefni dagsins komu nokkrir íslenskir Ólympíufarar saman og spiluðu á golfmóti Samtaka íslenskra Ólympíufara á Nesvellinum á Seltjarnarnesi. Þar voru sumir að stíga sín fyrstu spor á golfvelli og að slá sinn fyrsta bolta. Ávallt tilbúin að taka áskorun og hvetja aðra til að gera slíkt hið sama.
Nálgast má myndir frá Ólympíudeginum á Íslandi 2017 hér.