Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

14

Íþróttavika Evrópu

23.08.2017

Í dag er einn mánuður þar til Íþróttavika Evrópu (European Week of Sport) verður haldin víðsvegar um álfuna, vikuna 23. – 30. september nk. Markmið íþróttavikunnar er að kynna íþróttir og hreyfingu fyrir almenningi í Evrópu og er hún ætluð öllum óháð aldri, bakgrunni eða líkamlegu ástandi. Sérstök áhersla er lögð á að höfða til grasrótarinnar og að hvetja Evrópubúa til að sameinast undir slagorðinu #BeActive til þess að hreyfa sig oftar og meira í sínu daglega lífi.

Þetta verður í annað sinn sem íþróttavikan er haldin hér á landi en það var fyrst gert árið 2015. Stór hluti í undirbúningi vikunnar felst í góðu samstarfi og samskiptum milli þeirra þjóða og aðila sem að verkefninu standa. Að því marki héldu Hrönn Guðmundsdóttir og Magnús Þórarinsson, starfsmenn Almenningsíþróttasviðs ÍSÍ, til Dublin á Írlandi í vor til að taka þátt í námskeiðum og verkefnavinnu á vegum Evrópusambandsins ásamt öðrum þátttökuþjóðum átaksins.

Nánar verður fjallað um Íþróttaviku Evrópu þegar að nær dregur verkefninu, en hér má sjá vefsíðu European Week of Sport.