Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

25.03.2026 - 25.03.2026

Ársþing LSÍ 2026

Ársþing Lyftingasambands Íslands (LSÍ) verður...
25.03.2026 - 25.03.2026

Ársþing KÍ 2026

Ársþing Klifursambands Íslands (KÍ) verður...
26.03.2026 - 26.03.2026

Ársþing HSK 2026

Ársþing Héraðssambandsins Skarphéðins (HSK)...
22

Göngum í skólann sett í morgun

06.09.2017Í morgun fór fram setningarhátíð Göngum í skólann 2017 í Víðistaðaskóla í Hafnarfirði en þetta er í 11. skipti sem verkefnið fer fram. Dagskráin hófst með því að Hrönn Bergþórsdóttir skólastjóri bauð alla velkomna og í kjölfarið fluttu Lárus L. Blöndal forseti ÍSÍ, Óttarr Proppé heilbrigðisráðherra og Rósa Guðbjartsdóttir formaður fræðsluráðs Hafnarfjarðar stutt ávörp þar sem þau lögðu áherslu á mikilvægi þess að nota virkan ferðamáta til og frá skóla og huga afar vel að umferðaröryggi ungra vegfarenda.

Þá fluttu nemendur flott söngatriði við gítarundirleik og meðal áheyrenda í salnum voru prúðbúnir lögregluþjónar. Að lokinni tónlist og ræðuhöldum þá fór formleg gangsetning verkefnisins fram með táknrænum göngutúr nemenda, gesta, starfsfólks og samstarfsaðila um Víðistaðatún í dýrindis sól og blíðu.

Hægt er að sjá myndir frá setningarhátíðinni hér á myndasíðu ÍSÍ.


Þeir aðilar sem að verkefninu standa hérlendis eru Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, mennta- og menningarmálaráðuneytið, Embætti landlæknis, Ríkislögreglustjóri, Slysavarnafélagið Landsbjörg, Samgöngustofa og Landssamtökin Heimili og skóli. Göngum í skólann er einnig hluti af Íþróttaviku Evrópu (European Week of Sport) sem fer fram vikuna 23.-30.september og #BeActive átakinu.

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands þakkar nemendum og starfsfólki Víðistaðaskóla kærlega fyrir glæsilegar móttökur og gestrisni.

Myndir með frétt