Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

25.10.2024 - 26.10.2024

Landsþing LH 2024

Ársþing Landssambands hestamannafélaga verður...
01.11.2024 - 30.11.2024

Syndum

Verkefnið Syndum hefst 1. nóvember og stendur...
12.11.2024 - 12.11.2024

Fundur

Fundur verður haldinn í framkvæmdastjórn ÍSÍ...
23

Tvö ár í Strandarleikana í San Diego

02.10.2017

Fyrstu Strandarleikarnir (ANOC World Beach Games) verða haldnir í San Diego í Bandaríkjunum í október 2019. Heimssamband Ólympíunefnda (ANOC) stendur fyrir leikunum.

Á leikunum mun fara fram keppni í 22 íþróttagreinum og koma þátttakendur frá 200 löndum. Íþróttagreinarnar sem keppt verður í eru meðal annarra hjólabretti, brimbretti og íþróttaklifur. Keppni fer aðallega fram á tveimur stöðum, á Mission strönd og nálægt miðbæ San Diego. Á setningar- og lokahátíðir er búist við um 40 þúsund áhorfendum og verið er að finna hentuga staðsetningu fyrir hátíðirnar. 

Fulltrúar leikanna í San Diego hafa undirbúið komu leikanna til borgarinnar vel, en þeir settu meðal annars upp vefsíðu leikanna sem sjá má hér og fésbókarsíða leikanna er hér.