Skotíþróttasamband Íslands hlýtur styrk úr Afrekssjóði ÍSÍ
Aukin þátttaka skotíþróttafólks á erlendum mótum og á sama hátt betri árangur hefur verið áberandi á árinu. Má þar m.a. nefna að meiri fjölbreytni her orðin innan sambandsins og á það bæði við loftgreinar, kúlugreinar og haglagreinar. Hefur STÍ þannig átt keppendur á öllum helstu stórmótum ársins og hafa íslenskir keppendur verið að ná settum lágmörkum og komast m.a í úrslit á Evrópumeistaramótum. Verið er að vinna markvisst að eflingu afreksstarfsins innan STÍ og má segja að stuðningur Afrekssjóðs ÍSÍ skipti þar verulegu máli.
Á myndinni má sjá þau Lilju Sigurðardóttur, formann Afrekssjóðs ÍSÍ, Líneyju Rut Halldórsdóttur, framkvæmdastjóra ÍSÍ, Halldór Axelsson, formann STÍ og Guðmund Kr. Gíslason, framkvæmdastjóra STÍ.