Hjartastuðtæki í Íþróttamiðstöðinni
10.11.2017
Í Íþróttamiðstöðinni eru þrjú hjartastuðtæki. Eitt er staðsett á 2. hæð í húsi 3, við hliðina á A sal. Annað er staðsett á jarðhæð í húsi 4, fyrir neðan Íslenska Getspá. Þriðja er staðsett á jarðhæð í húsi 1 og 2 við hlið lyftunnar.
Starfsfólk Íþróttamiðstöðvarinnar fékk kennslu á tækið fyrr á árinu, en fyrir þá sem komust ekki í kennsluna má horfa á myndband á ensku hér um hvernig nota á tækið í neyð.