Göngufótbolti hjá Þrótti
Fyrsta æfing í svokölluðum göngufótbolta var haldin föstudaginn 1. desember s.l. á Eimskipsvellinum í Laugardal. Göngufótbolti er fótbolti ætlaður eldri iðkendum og er markmiðið að hvetja eldri borgara og aðra til þess að stunda heilbrigða hreyfingu í góðum félagsskap. Íþróttin hefur notið töluverðra vinsælda í Englandi og á Norðurlöndunum.
Mikil ánægja var með þessa útfærslu á fótboltanum á fyrstu æfingunni og augljóst að þarna er vettvangur fyrir fótboltafólk á öllum aldri. Sögulegum fyrsta opinbera leiknum í göngufótbolta á Íslandi lauk með jafntefli, 4-4, en nokkuð mæddi á dómara leiksins sem ítrekað þurfti að stöðva æsta leikmenn sem í hita leiksins tóku upp á því að hlaupa, en það er einmitt bannað í þessari íþrótt.
Að loknum skemmtilegum leik var þátttakendum boðið í súpu og brauð í félagsheimili Þróttar þar sem tilþrif einstakra leikmanna voru rædd og spjallað um næstu skref. Ákveðið var að halda föstum æfingatíma á föstudögum kl. 12:00 og eru áhugasamir hvattir til að mæta og taka þátt í skemmtilegum leik í góðum félagsskap.
Nánar má lesa um göngufótboltann á vefsíðu Þróttar og ef spurningar vakna er hægt að hafa samband við Ótthar Edvardsson, otthar@throttur.is.