Golfklúbbur Selfoss fyrirmyndarfélag ÍSÍ
![](/library/Myndir/Frettamyndir/Fraedslusvid/Mynd%20%c3%a1%20k%c3%b6ku,%20Golfkl.%20Selfoss%207.%20des.%202017.jpg?proc=400x400)
Golfklúbbur Selfoss fékk endurnýjun viðurkenningar sinnar sem fyrirmyndarfélag ÍSÍ á aðalfundi félagsins á Selfossi í gær. Það var Sigríður Jónsdóttir varaforseti ÍSÍ sem afhenti Ástfríði M. Sigurðardóttur formanni klúbbsins viðurkenninguna.
Á meðfylgjandi myndum má m.a. sjá Sigríði og Ástfríði auk ungra iðkenda félagsins. Félagið lét útbúa forláta köku með merki fyrirmyndarfélaga af þessu tilefni og mæltist það ákaflega vel fyrir.