Glímufélagið Ármann til fyrirmyndar
![](/library/Myndir/Frettamyndir/Fraedslusvid/IMG_9583.jpg?proc=400x400)
Glímufélagið Ármann fékk endurnýjun viðurkenninga fyrir allar sínar deildir sem fyrirmyndardeildir ÍSÍ sunnudaginn 10. des. sl. á afmælishátíð félagsins í hátíðarsal Laugarbóls í Laugardal.
Það var Þráinn Hafsteinsson úr framkvæmdastjórn ÍSÍ og formaður Þróunar- og fræðslusviðs sem afhenti forystumönnum félagsins viðurkenningarnar. Alls eru 10 deildir innan Ármanns og þar sem allar deildirnar hafa þessa gæðavottun ÍSÍ er félagið í heild sinni fyrirmyndarfélag ÍSÍ.
Á myndinni er Þráinn Hafsteinsson lengst til hægri ásamt forystumönnum aðalstjórnar og deilda.