Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

25.10.2024 - 26.10.2024

Landsþing LH 2024

Ársþing Landssambands hestamannafélaga verður...
01.11.2024 - 30.11.2024

Syndum

Verkefnið Syndum hefst 1. nóvember og stendur...
12.11.2024 - 12.11.2024

Fundur

Fundur verður haldinn í framkvæmdastjórn ÍSÍ...
23

Sögulegur viðburður í íslenskri körfuknattleikssögu

15.01.2018

Ísland átti í fyrsta sinn tvo fulltrúa að störfum í sama leiknum á vegum FIBA í EuroCup kvenna í Riga í Lettlandi sl. fimmtudag. Þar áttust við heimakonur í TTT Riga gegn Mersin frá Tyrklandi.

Það voru þeir Sigmundur Már Herbertsson, FIBA dómari, og Rúnar Birgir Gíslason, eftirlitsmaður FIBA, sem voru saman í störfum. Um sögulegan viðburð er að ræða í íslenskri körfuknattleikssögu.

Meðdómarar Sigmundar Más voru þeir Tamas Benczur (aðaldómari) frá Ungverjalandi og Vladyslav Isachenko frá Úkraínu.

Um hörkuspennadi leik var að ræða, en honum lauk 62:63 fyrir gestina frá Tyrklandi.