Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

26.07.2024 - 28.11.2019

París 2024

Ólympíuleikarnir fara fram í París í...
20.09.2024 - 21.09.2024

Ársþing SKÍ 2024

Ársþing Skíðasambands Íslands verður haldið...
22.10.2026 - 28.11.2019

YOG 2026 - Dakar

Ólympíuleikar ungmenna (YOG) fara fram í...
30

Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ 2018 fór fram í dag

02.06.2018

Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ fór fram í tuttugasta og níunda sinn í dag laugardaginn 2. júní. Fyrsta Kvennahlaupið var haldið 30. júní árið 1990 í Garðabæ og var það haldið í tengslum við íþróttahátíð ÍSÍ en segja má að viðburðurinn sé fyrir löngu orðinn ómissandi hjá konum á öllum aldri. Það sem gerir hlaupið líka svo sérstakt, að þetta er ekki einn viðburður á einum stað heldur er hlaupið á meira en 80 stöðum um allt land sem og erlendis.

Góð þátttaka var í hlaupinu í dag en gera má ráð fyrir að um 10.000 konur hafi tekið þátt á yfir 80 stöðum um allt land og víða erlendis. Að vanda var boðið upp á mismunandi vegalengdir eða allt frá 900 m upp í 10 km. Mikil og góð stemning var hjá þátttakendum konum sem körlum, ungum sem öldnum. Markmið Kvennahlaupsins hefur frá upphafi verið að vekja áhuga kvenna á reglulegri hreyfingu. Allir taka þátt á sínum forsendum og lögð er áhersla á að hver komi í mark á sínum hraða. Þó svo að hlaupið hafi í upphafi verið til hvetja konur til hreyfingar eins og nafn þess gefur til kynna þá hafa karlmenn alltaf verið velkomnir í hlaupið. Það var því gaman að sjá hversu margir strákar tóku þátt í hlaupinu í dag.

Öldrunarheimili víðsvegar um land hafa boðið sínu heimilisfólki að taka þátt í Kvennahlaupinu í vikunni sem er að líða. Mikil ánægja er meðal heimilisfólks með þetta framtak og kapp er lagt í að virkja alla til þátttöku. Karlmennirnir hafa þá gjarnan tekið á móti konunum og veitt þeim verðlaunapeninga.

Hér má finna nokkrar myndir frá deginum.