Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

26.07.2024 - 28.11.2019

París 2024

Ólympíuleikarnir fara fram í París í...
27.07.2024 - 13.08.2024

Keppni í 100 m...

Anton Sveinn McKee keppir í 100 m bringusundi...
27

Lífshlaupið fer fram allt árið

22.06.2018

Lífshlaupið er heilsu- og hvatningarverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands sem höfðar til allra aldurshópa. Í einstaklingskeppninni geta allir tekið þátt og skráð niður sína daglegu hreyfingu allt árið. Skrá má alla hreyfingu niður ef hún nær minnst 30 mínútum samtals á dag hjá fullorðnum og minnst 60 mínútum samtals á dag hjá börnum og unglingum. Tímanum má skipta upp í nokkur styttri tímabil yfir daginn s.s. 10 til 15 mín. í senn.

Vefsíða Lífshlaupsins er www.lifshlaupid.is.

Í Lífshlaupinu eru landsmenn allir hvattir til þess að huga að sinni daglegu hreyfingu og auka hana eins og kostur er, þ.e. í frítíma, í vinnu, í skóla og við val á ferðamáta. Í ráðleggingum Embættis landlæknis um hreyfingu er börnum og unglingum ráðlagt að hreyfa sig í minnst 60 mínútur á dag og fullorðnum í minnst 30 mínútur á dag. Nánari upplýsingar um ráðleggingar um hreyfingu má finna á síðu Embættis landlæknis.  

ÍSÍ hvetur alla til að skrá sig og taka þátt í þessu frábæra verkefni sem Lífhlaupið er.

ÍSÍ bendir á að:
- Nú er hægt að lesa inn hreyfingu úr snjallforritunum Strava og Runkeeper.
- Endilega hafa samband við ÍSÍ ef vandamál koma upp í síma 514-4000 eða á netfangið hronn@isi.is.