Fyrirmyndarfélag ÍSÍ og Fyrirmyndarhérað ÍSÍ
![](/library/Myndir/Fraedslusvid/Logo/Fyrirmyndarf%c3%a9lag%20%c3%8dS%c3%8d.jpg?proc=400x400)
Fyrirmyndarfélag ÍSÍ og Fyrirmyndarhérað ÍSÍ eru gæðaverkefni íþróttahreyfingarinnar er snúa að íþróttastarfi. Með því að taka upp gæðaviðurkenningu fyrir íþróttastarf geta íþróttafélög, -deildir eða -héruð sótt um viðurkenningu til ÍSÍ miðað við þær gæðakröfur sem ÍSÍ gerir. Standist þau þessar kröfur fá þau viðurkenningu á því frá ÍSÍ og geta kallað sig Fyrirmyndarfélag ÍSÍ, Fyrirmyndardeild ÍSÍ eða Fyrirmyndarhérað ÍSÍ. ÍSÍ hvetur íþróttafélög, -deildir og -héruð til að sækja um þessa viðurkenningu til ÍSÍ.
Umsjón með verkefninu hefur Viðar Sigurjónsson (vidar@isi.is), skrifstofustjóri ÍSÍ á Akureyri.
Lesa má meira um Fyrirmyndarfélag ÍSÍ hér.
Lesa má meira um Fyrirmyndarhérað ÍSÍ hér.