Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

22.03.2026 - 22.03.2026

Ársþing HHF 2026

Ársþing Héraðssambandsins Hrafna-Flóka (HHF)...
25.03.2026 - 25.03.2026

Ársþing LSÍ 2026

Ársþing Lyftingasambands Íslands (LSÍ) verður...
25.03.2026 - 25.03.2026

Ársþing KÍ 2026

Ársþing Klifursambands Íslands (KÍ) verður...
16

Alþjóðlegur dagur æskunnar

10.08.2018

12. ágúst er alþjóðlegur dagur æskunnar. Alþjóðaólympíunefndin (IOC) og Evrópusamband Ólympíunefnda (EOC) hvetja ungt fólk til þess að deila mynd eða myndbandi á samfélagsmiðlum af sjálfu sér með þeim skilaboðum að fagna æskunni og ungu íþróttafólki. Markmið IOC er að bjóða hvarvetna upp á örugg og ánægjuleg íþróttasvæði fyrir ungt íþróttafólk til þess að æfa og keppa. Einnig er lögð áhersla á að ungt íþróttafólk öðlist jákvæða og ánægjulega reynslu af iðkun íþrótta. ÍSÍ hvetur æsku landsins til þess að taka þátt í þessu verkefni, en notast er við myllumerkin #YouthDay og #SafeSpaces4Youth til þess að koma deginum á framfæri.

Lesa má meira um alþjóðlegan dag æskunnar á vefsíðu Sameinuðu þjóðanna hér.