Íþróttir barna og unglinga
Íþróttir eru vinsælasta tómstundaiðkun barna á Íslandi en um 12 ára aldur stunda rúmlega átta af hverjum tíu börnum íþróttir með íþróttafélagi. Margar ólíkar íþróttagreinar eru í boði og ættu öll börn að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
Á Íþróttaþingi árið 1996 var samþykkt stefna í íþróttum barna og unglinga og frá þeim tíma hafa orðið töluverðar breytingar í íþróttaumhverfi barna. Síðan þá hafa sérsamböndin aðlagað og einfaldað keppnisfyrirkomulag í íþróttum barna, fækkað leikmönnum í liðum, minnkað mörk og dregið verulega úr mikilvægi úrslita með því að tilkynna síður úrslit í yngstu aldurshópunum. Samhliða þessum breytingum hefur þátttaka aukist verulega, fjölbreytni er meiri og börn byrja fyrr að stunda íþróttir með íþróttafélögum en áður. Þá er þátttaka foreldra í íþróttum barna mun meiri og væri íþróttastarfið í þeirri mynd sem það er í dag nær ómögulegt án aðkomu þeirra. Menntun þjálfara hefur aukist og aðstaða til íþróttaiðkunar stórbatnað.
Hér má sjá stefnu ÍSÍ í íþróttum barna og unglinga.
Hér má nálgast bæklinginn Íþróttir - Barnsins vegna.
Hér má nálgast leikjahefti ætlað íþróttaþjálfurum barna 10 ára og yngri.
Barna- og unglingastefnunni til stuðnings hafa Íþróttaboðorðin 10 verið mörkuð.