Buenos Aires 2018 - leikar settir
07.10.2018
Búið er að setja Ólympíuleika ungmenna 2018 í Buenos Aires formlega. Fánaberi við athöfnina fyrir Íslands hönd var Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir keppandi í frjálsíþróttum. Meðfylgjandi er mynd af Guðbjörgu Jónu, öðrum keppendum á leið á setningarhátíðina ásamt Örvari Ólafssyni aðalfararstjóra og Ingibjörgu Kristínu Jónsdóttur ungs áhrifavalds, auk nokkurra svipmynda frá setningunni.
Fyrsti keppnisdagur í Buenos Aires er svo sunnudaginn 7. október. Fyrstur til að keppa er Martin Bjarni Guðmundsson sem keppir í áhaldafimleikum pilta. Heildardagskrá íslensku keppendanna má finna hér.