Þjálffræði - endurútgáfa
10.12.2018
Líney Rut Halldórsdóttir framkvæmdastýra ÍSÍ og Heiðar Ingi Svansson framkvæmdastjóri Iðnú rituðu sl. föstudag undir samning um aðkomu ÍSÍ að endurútgáfu bókar um þjálffræði. Bók þessi er norsk en var fyrst gefin út á íslensku árið 1998. Bókin hefur verið endurútgefin nokkrum sinnum síðan með lítilsháttar breytingum. Nýja útgáfan er efnismeiri en sú fyrri og allar myndir verða endurunnar. ÍSÍ mun verða Iðnú innan handar með myndaöflun og yfirlestur. Bókin er aðal námsbókin í Þjálfaramenntun ÍSÍ og ein af fáum bókum um þetta efni sem til er á íslensku. Bókin mun koma út á seinni hluta næsta árs.