Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

26.07.2024 - 28.11.2019

París 2024

Ólympíuleikarnir fara fram í París í...
20.09.2024 - 21.09.2024

Ársþing SKÍ 2024

Ársþing Skíðasambands Íslands verður haldið...
22.10.2026 - 28.11.2019

YOG 2026 - Dakar

Ólympíuleikar ungmenna (YOG) fara fram í...
30

150 dagar til Evrópuleika

22.01.2019

Evrópuleikarnir 2019 fara fram í borginni Minsk í Hvíta-Rússlandi þann 21.-30. júní nk. Í dag eru 150 dagar þar til leikarnir verða settir.

Keppt verður í 15 íþróttagreinum, m.a. í bogfimi, frjálsíþróttum, badminton, 3x3 körfubolta, hjólreiðum, fimleikum, júdó, karate, borðtennis og glímu. Í tíu greinum af þeim 15 sem keppt verður í geta keppendur náð lágmörkum á Ólympíuleikana í Tókýó í Japan árið 2020. Gert er ráð fyrir um 4000 keppendum frá 50 löndum.

Leikarnir eru haldnir á vegum Evrópusambands Ólympíunefnda (EOC). Ýmis stórmót hafa verið haldin í Minsk síðastliðin ár og eru íþróttaleikvangar og aðrar aðstæður til íþróttakeppni til fyrirmyndar. Setningarhátíð leikanna fer fram á Dinamo leikvellinum kvöldið 21. júní. 

Vefsíðu Evrópuleikanna í Minsk má sjá hér.

Evrópuleikarnir 2019 eru einnig á Facebook.

#EuropeanGames
#Minsk2019
#BrightYearBrightYou
#InspiringSportInEurope