Getum við komið í veg fyrir misnotkun í íþróttafélaginu?
ÍSÍ bendir félögum og öðrum sambandsaðilum á það fræðsluefni sem til er og má finna á vefsíðu ÍSÍ hér.
• Bæklingurinn Forvarnir gegn kynferðislegu ofbeldi í íþróttum.
• Hegðunarviðmið ÍSÍ og Siðareglur ÍSÍ sem félög geta haft að leiðarljósi við samningu siðareglna eða tekið þær óbreytt upp.
• Viðbragðsáætlun við óvæntum atburðum.
• Tillaga að samþykki um uppflettingu í sakaskrá.
ÍSÍ fékk leyfi frá Norska Íþrótta- og Ólympíusambandinu til þess að nýta myndböndin sem sambandið lét gera í tengslum við málefnið. Hér, á Vimeo-síðu ÍSÍ, má sjá öll myndböndin á einum stað.
Besta forvörnin felst í því að fræða, eiga góðar siðareglur og að opið og jákvætt andrúmsloft ríki í félaginu. Þegar nýr þjálfari hefur störf innan félagsins er æskilegt að fá meðmæli frá félögum sem hann hefur þjálfað hjá og fara yfir siðareglur félagsins.
Ef grunur leikur á kynferðislegu ofbeldi eða einhverjar spurningar vakna skal hafa samband við Barnavernd í því sveitarfélagi þar sem brotið er framið ef um barn er að ræða og tilkynna í nafni félagsins. Ef um fullorðinn einstakling er að ræða skal hringt í lögreglu í síma 112.
Vert er að benda á vefsíðu Stjórnarráðsins, en þar má lesa um verkefnið Vitundarvakning, sem hefur það markmið að veita fræðslu og sinna forvörnum til að sporna gegn kynferðislegu, andlegu og líkamlegu ofbeldi gegn börnum.