Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

29

Setningarhátíð EYOWF í kvöld

10.02.2019

Vetrarólympíuhátíð Evrópuæskunnar er nú haldin í fjórtánda sinn, að þessu sinni í Sarajevó og Austur-Sarajevó í Bosníu-Hersegóvínu. Setningarhátíð leikanna fer fram í kvöld og lokahátíð leikanna fer fram kvöldið 16. febrúar. Aron Máni Sverrisson, keppandi í alpagreinum, er fánaberi Íslands á setningarhátíðinni. Hægt er að horfa á setningarhátíðina á facebook síðu EYOWF hér.

Keppnisgreinar á leikunum eru alpagreinar, skíðaskotfimi, skíðaganga, íshokkí, skautahlaup, listskautar, krulla og snjóbrettagreinar.

Íslendingar eiga 12 keppendur á hátíðinni, auk þjálfara og flokksstjóra, dómara, sjúkraþjálfara og aðalfararstjóra. Eftirtaldir munu taka þátt í leikunum fyrir Íslands hönd.

Alpagreinar
Andri Gunnar Axelsson Keppandi 
Aron Máni Sverrisson Keppandi
Guðfinna Eir Þorleifsdóttir Keppandi
Helga Björk Árnadóttir Þjálfari
Magnús Finnsson Flokksstjóri og þjálfari

Snjóbretti
Baldur Vilhelmsson Keppandi
Birkir Þór Arason Keppandi
Bjarki Arnarsson Keppandi
Kolbeinn Þór Finnsson Keppandi
Einar Rafn Stefánsson Flokksstjóri og þjálfari

Listskautar
Marta María Jóhannsdóttir Keppandi
Darja Zajcenko Flokksstjóri og þjálfari
María Fortescue Dómari

Skíðaganga
Egill Bjarni Gíslason Keppandi
Fanney Rún Stefánsdóttir Keppandi
Jakob Daníelsson Keppandi
Kolfinna Íris Rúnarsdóttir Keppandi
Vadim Gusev Flokksstjóri og þjálfari
Tormod Vatten Þjálfari

Í fararstjórn á vegum ÍSÍ eru eftirtaldir:
Örvar Ólafsson fararstjóri
Mundína Ásdís Kristinsdóttir sjúkraþjálfari

Hægt verður að fylgjast með íslenskum þátttakendum á hátíðinni í gegnum miðla ÍSÍ:
Vefsíða ÍSÍ
Facebook ÍSÍ
Instagram ÍSÍ
SnapChat ÍSÍ (á meðan á hátíðinni stendur): isiiceland

Vefsíða leikanna
Facebook síða leikanna

#eyof2019 #sarajevo #eastsarajevo

Myndir með frétt