Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

22.02.2025 - 22.02.2025

Ársþing SÍL 2025

Ársþing Siglingasambands Íslands (SÍL) verður...
15

Silfurverðlaun í körfu kvenna

01.06.2019

Lokaleikur íslenska körfuknattleikslandsliðs kvenna fór fram snemma í morgun. Liðið sigraði Kýpur 80:62 og náði þar með 2. sæti á Smáþjóðaleikunum 2019. Liðið hefur náð að halda góðri stemmningu í gegnum alla leikina, verið ákveðnar og það hefur verið frábært að fylgjast þeim. 

Stigahæst í íslenska liðinu var Sara Rún Hinriksdóttir með 16 stig. Næstar voru Gunnhildur Gunnarsdóttir og Hallveig Jónsdóttir með 13 stig hvor. 

 

Myndir með frétt