Áherslan á samstöðu kvenna
Þann 15. júní nk. fer Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ fram. Í ár fer hlaupið fram í þrítugasta skipti, en fyrsta Kvennahlaupið var haldið árið 1990. Upphaflega var markmið hlaupsins að fá fleiri konur út að hreyfa sig og að hvetja konur til þátttöku í starfi íþróttahreyfingarinnar á Íslandi. Þau markmið hafa um margt náðst þar sem konur hreyfa sig mun meira í dag en fyrir 30 árum, íslenskar íþróttakonur eru að ná frábærum árangri á heimsvísu og margar konur í forsvari fyrir íþróttahreyfinguna hérlendis. Í dag er áherslan ekki hvað síst á samstöðu kvenna, að hver njóti þess að hreyfa sig á sínum forsendum og eigi ánægjulega samverustund með fjölskyldu og vinum. Hlaupið er árviss viðburður hjá mörgum konum sem taka daginn frá til að hlaupa með dætrum, mæðrum, ömmum, systrum, frænkum og vinkonum sínum og margir karlmenn slást líka í hópinn.
Ekki þarf að skrá sig sérstaklega í hlaupið. Hægt er að kaupa boli á hlaupastöðunum og kosta þeir 2000 kr. fyrir 13 ára og eldri og 1000 kr. fyrir 12 ára og yngri. Þeir sem vilja geta engu að síður gengið frá kaupum á bol fyrir hlaup hér á TIX.is.
Hlaupið um allt land og allan heim
Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ er haldið á yfir 80 stöðum á landinu. Fjölmennasta hlaupið er haldið í Garðabæ og einnig fer stórt hlaup fram í Mosfellsbæ. Á landsbyggðinni fara einnig fram fjölmenn hlaup sem skipulögð eru af öflugum konum í hverju bæjarfélagi fyrir sig. Hlaupastaði má sjá hér á vefsíðu Sjóvá Kvennahlaups ÍSÍ.
Íslenskar konur sem eru búsettar erlendis hafa einnig tekið sig til og haldið Kvennhlaup víða um heim, í Danmörku, Noregi, Svíþjóð, Færeyjum, Þýskalandi, Belgíu, Lúxemborg, Mallorca, Bandaríkjunum, Mósambík og Namibíu.