Minsk 2019 - Ísland sendir sjö keppendur á Evrópuleikana 2019
18.06.2019
Sjö keppendur munu keppa fyrir Íslands hönd á Evrópuleikunum í Minsk í Hvíta-Rússlandi, en leikarnir hefjast föstudaginn 21. júní nk.
Þeir eru:
- Agnes Suto-Tuuha, áhaldafimleikar kvenna
- Ásgeir Sigurgeirsson, 10m loftbyssa
- Eowyn Marie Alburo Mamalias, trissubogi kvenna
- Hákon Þór Svavarsson, leirdúfuskotfimi (skeet) karla
- Kári Gunnarsson, badminton, einliðaleikur karla
- Sveinbjörn Jun Iura, júdó -81kg karla
- Valgarð Reinhardsson, áhaldafimleikar karla
Auk þeirra eru í íslenska hópnum þau:
- Andri Stefánsson, aðalfararstjóri
- Atli Jóhannesson, flokksstjóri/þjálfari - badminton
- Guðmundur Örn Guðjónsson, flokksstjóri/þjálfari - bogfimi
- Halldór Axelsson, flokksstjóri/þjálfari - skotíþróttir
- Kelea Josephine Alexandra Quinn, þjálfari - bogfimi
- Lajos Kiss, þjálfari - áhaldafimleikar
- Róbert Kristmannsson, flokksstjóri/þjálfari - áhaldafimleikar
- Yoshihiko Iura, flokksstjóri/þjálfari - júdó
Lárus L. Blöndal, forseti ÍSÍ, verður viðstaddur setningarhátíð leikanna og fyrstu keppnisdaga auk þess sem að Líney Rut Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri ÍSÍ verður viðstödd leikana, en hún situr bæði í framkvæmdastjórn EOC (Evrópsku Ólympíunefndanna) og situr í Evrópuleikanefnd á vegum sömu samtaka.
Tveir íslenskir dómarar verða á störfum á leikunum á vegum alþjóðlegra sérsambanda, en það eru þau Hlín Bjarnadóttir og Björn Magnús Tómasson sem dæma keppni í áhaldafimleikum. Þau voru einnig dómarar á síðustu leikum í Bakú 2015.
Leikarnir verða settir föstudagskvöldið 21. júní og þeim slitið að kvöldi sunnudagsins 30. júní.
Vefsíðu Evrópuleikanna má sjá hér.
Evrópuleikarnir eru einnig á Facebook
#EuropeanGames
#Minsk2019
#BrightYearBrightYou
#InspiringSportInEurope