Valgeir kjörinn varaforseti Evrópska keilusambandsins
19.06.2019
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands óskar Valgeiri innilega til hamingju með kjörið!
Valgeir Guðbjartsson var kjörinn varaforseti Evrópska keilusambandsins (ETBF) til næstu 4 ára á ársþingi sambandsins sem fram fór í Munchen í Þýskalandi þann 9. júní sl. Valgeir hefur verið í stjórn ETBF í 14 ár og þar af sem framkvæmdastjóri þess s.l. 9 ár. Með því að ná kjöri sem varaforseti ETBF færast aðrar skyldur á Valgeir en hann mun m.a. núna sjá um evrópsku mótaröðina í keilu ásamt öðrum verkefnum.
Það er mikill heiður fyrir íslenska íþróttahreyfingu að eiga fulltrúa í æðstu stjórn keiluíþróttarinnar í Evrópu.Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands óskar Valgeiri innilega til hamingju með kjörið!