Ólympíustöðin sýnir frá fundi Alþjóðaólympíunefndarinnar
24.06.2019
Í dag kl.14:00 (kl.13:00 ísl.) mun Ólympíustöðin sýna frá fundi Alþjóðaólympíunefndarinnar (IOC) í Lausanne í Sviss í beinni útsendingu.Thomas Bach, forseti IOC mun tilkynna á fundinum hvaða borg það er sem verður gestgjafi Vetrarólympíuleikanna 2026, en sú athöfn fer fram kl.18:00. Borgirnar tvær sem keppast um að verða valdar sem gestgjafi leikanna eru Stokkhólmur-Åre í Svíþjóð og Mílanó-Cortina á Ítalíu. Á fundinum munu fulltrúar frá báðum borgum vera með erindi, en Ólympíustöðin mun einnig sýna myndefni sem unnið hefur verið um undirbúning borganna í tengslum við Vetrarólympíuleikana 2026 ásamt viðtölum við skipuleggjendur og fleiri sem koma að slíku verkefni. 
Dagskrá fundarins
| 
             Mánudagur, 24. júní  | 
        ||
| 
             14:00  | 
            
             Kynning: Stokkhólmur-Åre  | 
        |
| 
             14:45  | 
            
             Kynning: Mílanó-Cortina  | 
        |
| 
             17:30  | 
            
             Myndefni frá Ólympíustöðinni um undirbúning borganna  | 
        |
| 
             18:00  | 
            
             Tilkynning: Gestgjafi Vetrarólympíuleikanna 2026  | 
        |
| 
             18:30  | 
            
             Fjölmiðlafundur  | 
            
             
  | 
        
Um Ólympíustöðina
Ólympíustöðin er ókeypis vettvangur sem sýnir beint frá íþróttaviðburðum og býður upp á þáttaraðir tileinkaða íþróttum og íþróttafólki allt árið um kring. Stöðin leggur áherslu á afreksíþróttafólk og þeirra leið að meiri árangri. Á Ólympíustöðinni geta notendur upplifað kraft íþróttanna og Ólympíuhreyfingarinnar allt árið, hvar sem er og hvenær sem er. Hægt er að horfa á Ólympíustöðina á vefsíðu Olympic Channel. Íþróttamenn og aðdáendur geta einnig fylgt Ólympíustöðinni á samfélagsmiðlasíðum hennar, Facebook, Instagram, Twitter og YouTube.