EYOF 2019 - Fyrsti keppnisdagur
![](/library/Myndir/Frettamyndir/Afreks-og-olympiusvid/EYOF/2Baku2019.jpg?proc=400x400)
Þá er fyrsti keppnisdagur framundan í Bakú í Aserbaídsjan. Fyrstur til að hefja keppni er Ólíver Máni Samúelsson sem keppir í 100m. hlaupi kl. 10.50 að staðartíma (06.50 að íslenskum tíma). Íslenska drengjaliðið í handknattleik leikur svo við Frakka kl. 16.30 (12.30). Dagur Fannar Einarsson keppir í langstökki kl. 19.20 (15.20 að íslenskum tíma).
Hægt er að fylgjast með mörgum af keppnisviðburðum leikanna hér.